Dagmömmubörn Binnu !
Heimasíður
Foreldra heimasíður.
Dagsetning
10. febrúar 2012
25.01.2007 23:20:01 / Noja

Ný bloggsíða

Við höfum farið yfir á nýtt bloggsvæði.

Nýja bloggsíðan okkar er.....

http://www.123.is/binnukot/

Kveðja

Binna dagmamma


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 12:12:46 / Noja

Hæ hæ.....

Æ já já...við vitum það að við erum ekki dugleg við að blogga !!!! :$ Það er bara svo mikið að gera hjá okkur að við nennum bara ekki að vera í tölvunni. :D

Jæja, en nýjustu fréttirnar af okkur eru þær að hann Eiður Sölvi er byrjaður hjá okkur. Hann er lítill sætur 1 árs strákur og er bróðir hans Daða Snæs sem var hjá Binnu einu sinni. Hann hefur verið voða duglegur og ekkert verið að gráta neitt þó að mamma og pabbi fari. Við vonum að það verði þannig áfram :P

Hann Eiður er mjög duglegur að leika og elskar mjúka bangsa og tuskudýr. Svo hefur hann mikinn áhuga á því sem að hin börnin eru að gera. Bara gaman gaman..:P

Heilsan er bara sæmileg á okkur núna, þannig séð, þó að það sé smá hor í nös og smá hósti en eru það bara ekki allir á þessum tíma ? :haha:

Hugi litli var í miklu stuði hér í morgun og hljóp, hoppaði og skoppaði þar til hann datt og fékk smá kúlu, en það hristi hann nú bara af sér eins og skot. Hann er svo mikill "golíat" að hann grætur varla þó hann meiði sig þessi elska. :haha:

Reyndar er Eyglóin mín smá pirruð í dag...stuttur þráðurinn hjá henni, en það er alveg örugglega út af því að hún er að taka fleiri tennur. Gómurinn hennar er dálítið bólginn á einum stað. (Binna rannsakar allt svona :haha:)

Eydís skottulínan mín er búin að vera í svona.... la la "sæmilegu" skapi í dag, en ekki meira en það. Maður getur nú ekki alltaf verið í stuði sko....:P:P en svona daga getur maður átt stundum. ;)

Guðjón kom eins og byssubrandur í morgun til Binnu sinnar..búinn að borða og allt og í þvílíku stuði að hann réði varla við sig. :haha::haha: Binna var nú bara að spá í hvort hann hafið nokkuð fengið Honey nut Cherrios í morgunmat...stuðið á honum var þvílíkt, hahahahaha...:haha:

Annars eru allir að hvíla sig í augnablikinu og svo verður bara farið að fá sér snæðing og að leika meira. Mikið gaman og mikið fjör á litlu krílunum.

Biðjum að heilsa öllum og ekki vera hrædd við að commenta...:P

Kveðja....Grislingarnir í Binnu-bæ !!!! :haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 09:59:22 / Noja

Mikið fjör.

Hæ hæ

Viljum aðeins láta heyra frá okkur hér í Binnu-bæ. Allir þvílíkt kátir og með gífurlega orku. :D

Þegar að við opnuðum hjá okkur gluggann í morgun þá heyrðum við í honum Krumma ! Við heyrum stundum í honum, sérstaklega ef það er kalt úti, þá vill hann dálítið vera á ráfi hér í hverfinu. Fundum flotta mynd af Krumma, og svo sungum við auðvitað... Krummi krunkar úti...Það þykir þeim gaman litlu krílunum mínum að syngja..:haha::haha:

Morguninn var svo fjörugur að Binna þurfti nánast að fá sér eyrnatappa. Það var svo gaman og mikill hávaði að það var alveg magnað.  Svo er nú svo mikið stuð að henda dóti  fast í gólfið...svona þyngri hlutum sem heyrist vel í :haha::haha:

Annars eru þau bara sæl og glöð og góðir vinir þessar elskur. Smá hósti og nefrennsli að hrjá okkur flest, en það gengur yfir eins og hvað annað.

Núna eru þau í hvíld litlu krílin mín og vakna svo endurnærð og hress í hádegismatinn ;)

Við segjum bless í bili og sendum öllum góðar kveðjur sem að lesa. 

Kveðja frá krílahópnum hennar Binnu :P


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 10:39:53 / Noja

Nýtt ár !

      

Gleðilegt ár allir sem að lesið. Takk fyrir liðinn tíma.

Við skrifum fljótlega, vildum bara láta vita að við erum eldhress og kát og allir mættir á nýju ári. Síðan um miðjan janúar kemur lítill hnokki til okkar í pössun sem heitir Eiður Sölvi. Voða sætur strákur og verður örugglega jafn yndislegur og bróðir hans sem var hjá Binnu  fyrir nokkrum árum :P

En við skrifum meira fljótlega.

Kveðja úr Binnu-bæ !   

                                         


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 11:21:34 / Noja

Gleðileg jól

Hæ hæ allir sem lesa :D

Jæja, nú styttist í jólin og jólafríið okkar. Allir komnir í frí eftir föstudaginn næsta. Svo hittumst við aftur þriðjudaginn 2 janúar 2007.

En hér eru allir hressir og kátir í Binnu-bæ. Litlir fjörkálfar endalaust að leika og hafa það skemmtilegt. Stundum verða árekstrar eins og gengur og gerist en það lagast allt saman strax aftur.

Á föstudaginn fer Guðjón litli til Ítalíu með fjölskyldunni sinni á skíði og óskum við þeim góðrar ferðar og gleðilegra jóla þar úti. Það verður örugglega rosalega gaman hjá þeim að eyða jólunum á Ítalíu. 

Við reiknum ekki með að skrifa meira hér inn fyrir jólin og vil ég þess vegna óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best, njótið hvíldarinnar og friðarins yfir hátíðirnar.

Svo sjáumst við hress og kát á nýja árinu.

Binna dagmamma :P

                                      


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 08:29:13 / Noja

Hæ hæ...

                                    

Góðan daginn allir sem lesið :P

Hér í Binnu-bæ eru allir voða hressir og kátir að vanda. Reyndar er Eydís Arna lasin í dag líka. Hún kom ekki í gær heldur litla skottan okkar. Vonandi verður hún fljót að ná sér þessi elska og sendum við henni okkar bestu kveðjur. :P

Nú erum við aldeilis komin í jólagírinn hér. Við hlustum á jólalög á hverjum degi og svo er dansinn auðvitað stiginn við "sum" þeirra...sem sagt þau laganna sem eru í uppáhaldi hjá litlu krílunum.:haha::haha: Þau dansa sko ekki við öll lög skal ég segja ykkur. En við þau laganna sem þeim finnst skemmtileg er sko dansinn heldur betur stiginn. :haha::haha:

Við settum upp lítil jólatré með þessum líka fallegu marglitu ljósum og litlu krílin eru svo hrifin af ljósunum. Hvernig verður það þegar að jólatréð verður sett upp hjá okkur mæður og feður ???? 8|8|8| Það verður freistandi fyrir litla fingur að fá að fikta dálítið...:haha: og skoða :P

Jæja við sendum ykkur okkar bestu kveðjur héðan úr Binnu-bæ og vonum að þið hafið það öll sem allra allra best. Við höfum það alla vega alveg rosalega gott ! :haha::haha::haha:

Kveðja.....

frá litlu jólaljósunum í Binnu-bæ !


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 10:47:51 / Noja

Hæ hæ og hó hó...

Góðan daginn :D

Ekki verður um okkur sagt að við séum dugleg að blogga í Binnu-bæ. Það er nú aldeilis hvað við erum værukær. :$

Annars er allt gott að frétta hér af okkur. Allir alltaf svo hressir og kátir. Skemmtilegur og glaður hópurinn hennar Binnu :P Reyndar kom Hugi litli ekki til okkar í dag og höfum ekki heyrt frá litla kallinum. Vonum að hann sé ekki lasinn.

Litlu grísirnir mínir þrír,:haha: Eydís Arna, Eygló og Guðjón eru búin að vera í þvílíku stuði í morgun. Svo gaman hjá okkur alltaf að leika. Nú svo erum við auðvitað byrjuð að spila jólalögin og dönsum með þeim. Þvílíkt stuð. Svo þegar lagið kemur...höfuð, herðar, hné og tær...þá er sko tekið vel undir og Eydís Arna syngur með því hún kann sko textann við þetta lag ! :haha:

Núna eru allir í hvíld og svo verður hádegisverðurinn. Eftir það förum við í fullt að leika okkur aftur úthvíld og spræk :haha:

Hafið það gott og endilega að commenta. Ekki vera feimin við það :P

Kveðja frá litlu fjörkálfunum í Binnu-bæ :!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 10:15:43 / Noja

Kominn nóvember !

                            

Vá hvað er langt síðan að við blogguðum !!! :$

En annars er allt ágætt að frétta af okkur hér í Binnu-bæ, það er að segja okkur...sem erum hér. Hugi og Guðjón eru báðir veikir. Hugi er búinn að vera veikur frá því á föstudaginn, en Guðjón kom ekki í gær og kemur ekki fyrr en á mánudaginn næsta.

Æ, greyin litlu, við vonum að þeir hressist sem fyrst svo þeir komist til okkar að leika.

Það eru dálítið skrítnir dagarnir þegar að það eru svona fá börn. Til dæmis var Eygló litla bara ein hjá Binnu sinni í gær, þar sem að Eydís Arna er búin að vera veik líka. Það var skrítinn dagur fyrir hana...:D engin börn :D En þær eru þó tvær skvísurnar í dag og voða gaman.

Jæja, vildum bara aðeins láta vita af okkur. Við erum nú ekkert allt of dugleg að skrifa hérna inn, en betra er sjaldan en aldrei :haha:

Hafið það sem allra best :P

Kveðja út Binnu-bæ !


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 10:47:22 / Noja

Helgin að koma :)

Jæja, þá getum við bloggað aftur eftir að tölvan okkar var í viðgerð.

Það er búið að vera mikið stuð hjá okkur. Allir svo glaðir og kátir og fullt að gera við að leika saman.

Í morgun var Eygló ekki dugleg að borða. Binna bauð henni morgunmatinn, sem var hafragrautur en hún fékk hann bara jafnhraðan til baka. :S Ekki að ræða það að hann færi niður !!! Binna bauð henni þá jógúrt...en nei...ekki heldur takk fyrir ! Þannig að lillan var bara látin ráða þessu og undi hún glöð við sitt að fá að fara að leika að dótinu inni í herbergi :P  Hún verður að líkindum þokkalega svöng í hádeginu og borðar þá vonandi vel :haha:

Hin þrjú, Eydís Arna, Hugi og Guðjón, voru sko virkilega dugleg að borða og voru með bumbuna sína vel belgda þegar að þau fóru að leika sér. :haha::haha:

Nú er enn og aftur að koma helgi, vikan er svo fljót að líða hjá okkur 8| ótrúlega fljót að líða.

Við segjum bara góða helgi við alla, og kveðjum héðan úr Binnu-bæ. :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 11:39:52 / Noja

Loksins

                                    

Jæja, loksins bloggum við örlítið hér í Binnu bæ. Það er nú búið að vera smá pikkles á síðunni og ég ekki getað bloggað neitt. En nú er þetta allt komið í lag. :P

Litlu krílin mín eru alveg yndisleg. Þau eru svo góð og voru svo fljót að aðlagast. Það er ein lítil dúlla að byrja hjá okkur núna og er hún barn nr. 4. og er í aðlögun. Hún heitir Eygló og hún lofar góðu :P Brosir bara hringinn og er áhugasöm um hin börnin.

Hugi minn er í fríi á Florida. Hann kemur ekki fyrr er 20 okt. aftur til okkar. Vonandi að þau hafi það gott fjölskyldan þarna úti og njóti þess að vera í fríi. :P

Guðjón og Eydís Arna eru eins og hugur manns. Þau eru svo góð þessar litlu elskur. Dugleg að borða og svo eru þau svo góð að leika sér og eru miklir vinir.

Það er sem ég segi...þetta eru yndisleg börn sem ég hef. Ég hef nú yfirleitt alltaf verið svo heppin, bæði með börn og foreldra. Ég þarf nú ekki að kvarta yfir því :haha:

Núna eru litlu börnin mín að hvíla sig og svo verður ráðist í hádegismatinn þegar að þau vakna og svo tekið aftur til við að leika og hafa það skemmtilegt.

Hafið það gott vinir.

Kveðja frá krílunum í Binnu-bæ !  :haha::haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 18:06:48 / Noja

Ný börn í Binnu-bæ !

 

Halló halló þið sem lesið bloggið okkar.

Nú er nýtt tímabil byrjað hjá Binnu, og ný börn komin inn. Eins og er þá eru bara komin 3 börn, en það er von á fleirum. Við tökum því bara rólega fyrst, sem er bara gott mál. Það á alveg örugglega eftir að fjölga börnum hér á bæ. Sölvi litli (bróðir Daða sem var hér áður) kemur í lok árs, og svo kemur í ljós á næstu dögum með síðasta plássið.

En ég vil þakka ykkur, yndislegu foreldrar þeirra barna sem að voru hjá mér í seinasta holli fyrir commentin og að skrifa í gestabókina okkar. Það gleður Binnu hjarta að fá að heyra frá ykkur og fá að fylgjast með hvernig gengur hjá litlu krílunum mínum sem að Binnu þykir svo undur vænt um. Svo finnst mér líka svo yndislegt að sjá að þeir foreldrar sem eiga enn eldri börn sem hafa verið hjá mér skrifa líka. Endilega ekki hætta að kíkja við hjá okkur. :P

Við ætlum að reyna að hafa svipaðan háttinn á í vetur og skrifa hér af og til. Láta heyra frá okkur, hvernig lífið gengur í Binnu-bæ :haha:

Ég er búin að setja inn myndir af nýju börnunum mínum hér til hliðar vinstra megin ef þið viljið kíkja. Yndisleg kríli sem eru svo góð hjá Binnu. Guðjón litli er bróðir hans Gauta sem var áður hér hjá okkur í Binnu-bæ :D

Hafið það sem best og endilega commentið, eða kvittið í Gestabókina okkar.

Bestu kveðjur,

Binna dagmamma :P


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 11:14:48 / Noja

Nýjir tímar taka við....

 Eydís Gyða.

Litla dúllan mín sem var svo pínu angnar lítil þegar hún byrjaði hjá Binnu sinni. Alltaf kom hún fagnandi til Binnu og knúsaði hana í byrjun dags. Mikil kelurófa og svo góð við alla. Litla dúllan mín sem kallaði mig mömmu, ömmu og stundum Binnu. Núna er hún að fara í sama leikskóla og Úlfar Dagur bróðir hennar.

Takk fyrir allt litla prinsessan mín.

 Steindór Sólon.

Litli frændinn minn sem ætlaði ekki að samþykkja frænku í upphafi, og streyttist á móti eins og hann gat, en gafst svo upp að lokum og sá að það var svo gaman hjá Binnu og krökkunum. Steindór er yndislegt barn, svo ljúfur og góður, og alltaf svo viljugur að lána, gefa, og deila með öðrum. Steindór fer á leikskólann Frostaborg.

Takk fyrir samveruna elsku sæti frændinn minn.

 Aldís Dröfn.

Aldís litla kom hér til Binnu eins og hún hafi alltaf verið hjá henni. Alltaf svo ljúf og góð við allt og alla. Ekki það að skilja að maður væri neitt skaplaus. Nei nei. En hún sýndi það kannski ekki svo oft. Hún var mikill dundari, og ekki lætin í henni elskunni. Litla dísin sem vildi ekki borða fyrst hjá Binnu, en eftir stutta dvöl var hún orðin ein af þeim duglegustu, og borðaði allt sem var í boði ! Aldís er byrjuð á leikskólanum Brekkuborg.

Takk fyrir samveruna litla dúllan mín.

 Viktor Torfi.

Viktor litli sæti púkinn hennar Binnu, sem alltaf er í stuði. Alltaf svo stutt í hláturinn og kætina. Dansari af líf og sál, og elskar tónlist. Hann er grallari mikill, og þó að hann hafi elskað að stríða og honum bannað það, þá var ekki annað hægt en að snúa sér við og hlæja í laumi, því hann er svo yndislega spes þessi litli kútur, sem bræðir alla. Þótt Viktor elski að púkast, þá er hann um leið svo yndislega ljúft barn. Viktor fer í leikskóla í Mosfellsbæ.

Takk fyrir allt elsku litli kúturinn hennar Binnu.

 Tinna Kara.

Tinna litla er alltaf svo glöð. Alltaf kom hún brosandi til Binnu sinnar. Alltaf svo kát og hress. Talaði og talaði á sínu máli fyrst, og sagði Binnu heilu sögurnar, sem Binna auðvitað þóttist skilja, en svo fórum við að skilja allt sem hún sagði, því hún var svo fljót til að tala. Alltaf svo fín og mikil prímadonna. Einstaklega blítt barn, sem fannst yndislegt að sitja hjá Binnu og kúra og lesa í bók, eða bara spjalla. 

Tinna er byrjuð í leikskólanum Brekkuborg með Aldísi litlu.

Takk fyrir samveruna elsku litla Tinnslan mín.

                       *********************

Nú skrifum við ekki meira í bili á þessa síðu. Það koma ný börn í september og þá byrjum við aftur að halda út síðunni.

Ég vil þakka foreldrum barnanna minna, yndislega samveru. Þið eruð búin að vera frábær. Takk fyrir það að mér var treyst fyrir börnunum ykkar. Þið eigið öll dásamlega gullmola sem ég á sko sannarlega eftir að sakna, það eitt er víst.

Vonandi fæ ég að hitta ykkur síðar, og sjá litlu krílin mín hvað þau hafa stækkað. Það finnst Binnu yndislegt, þegar hún hittir börn sem hafa verið hjá henni. Það er svo skrítið að þegar maður skilur við litlu börnin sín, þá situr minningin í höfðinu um þau eins og þau voru þegar að þau voru hér í vistun, og eins og þegar ég skildi við þau. Svo er svo gaman þegar ég hitti þau síðar eða þau koma í heimsókn, þá eru þau orðin svo stór.

Í Binnu huga eru þau alltaf lítil. Minning mín er þannig, ef ég sé þau ekki aftur.

Takk fyrir frábæra samveru kæru vinir og litlu yndislegu krílin mín sem voru hjá Binnu í Binnubæ árið 2005-2006. Ég mun sakna ykkar. Guð geymi ykkur elskurnar og gefi ykkur gæfuríka framtíð.

Kveðja

Binna dagmamma.

Ps. í lokin....nýlegar myndir komnar inn. Þær eru undir...Binnukríli um miðjan júní 2006.


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 11:48:07 / Noja

Hæ hæ....

                       

Jæja, loksins skrifum við smávegis á síðuna okkar.

Binna er búin að vera í Ameríku, og svo var tölvan í viðgerð þar sem að kom einhver vírus í hana.

Aldís og Tinna eru hættar hjá okkur, svo það er ansi rólegt. Bara 3 börn hjá Binnu.

Aldís fór strax í leikskólann, en Tinna fór til Tyrklands með fjölskyldu sinni, og svo fer hún beint í leikskólann. Við vonum að þær hafi það gott, litlu elskurnar, og sendum þeim kærar kveðjur.

Eydís, Steindór og Viktor eru alltaf eldhress. Skemmta sér vel, og eru dugleg að leika saman. Það verður skrítið þegar að þau hætta svo líka eftir bara 3 vikur ! :(  Öll Binnubörnin að hætta, og ný koma inn í haust. Núna er Binna að ráða inn ný börn sem hún bara þekkir ekki neitt, en á auðvitað eftir að kynnast....:P og það verður skrítið að fá ekki litlu krílin sín aftur eftir sumarfrí.:cry:  En það verður líka gaman að takast á við ný verkefni hjá þeim litlu skinnunum og fara í leikskólann.

Litlu púkarnir mínir mættu hress og kát í morgun. Þau voru svo góð að dunda, að ég vissi bara  varla af þeim. Melkorka kom svo til okkar eftir sundnámskeiðið, og það finnst þeim gaman. Þau eru voða hrifin af henni. Viktor vill nú bara eiga hana. :haha:  Þegar að hún fór heim með pabba sínum í hádeginu í gær, ætlaði hann að banna henni að fara !!!:haha::haha: Hún átti bara að vera hjá okkur.

Jæja, við biðjum að heilsa héðan úr Binnu-bæ, og reynum að láta ekki líða langt í næstu færslu frá okkur. :$

Bæ í bili.....The 3 amigos ! :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 11:50:07 / Noja

Síðustu dagarnir :(

  

Jæja....þá fer að líða að því að Tinnslan mín og Aldísin mín hætti hjá Binnu sinni. :( Þær eru báðar að fara í leikskóla í júní. Það verður söknuður af þeim, en við óskum þeim alls hins besta í nýjum leikskóla, og vonum að þær verði fljótar að aðlagast þar. Alla vega, þá verða þær á sama leikskólanum, svo að þær hafa hvor aðra til að styðjast við.

Það er búið að vera gaman hjá okkur í morgun. Herbergið var sett á hvolf í orðsins fyllstu merkingu. Allt dót dregið fram á gólfið og leikið með það. Þau voru svo góð að dunda þessar elskur. Pínu pústrar, en það var svo lítið að varla sé hægt að tala um það. :)

Nú er von á rigningu eitthvað út þessa viku, svo varla förum við út að leika. Það er svo gaman að geta verið úti líka eftir matinn. En þetta lagast nú allt vonandi og við getum farið að vera bara úti allan daginn hjá Binnu. Við biðjum bara um sól og hita....og þá verðum við BARA úti að leika !!!! :haha:

Hér segjum við bless í bili, og sendum ykkur kærar kveðjur úr Binnu-bæ !!! :haha::haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 11:20:33 / Noja

Komin helgi.

                     

Já, þá er komin helgi enn og aftur. Vikan er svo fljót að líða, sérstaklega þegar að það er frí 1 daginn í vikunni :haha:

Annars eru allir hér í Binnu-bæ hressir og kátir. Steindór hefur reyndar ekki verið alla þessa viku, þar sem að hann og mamma hans eru úti í Þýskalandi. Steindór fór að hitta pabba sinn sem er í námi þar. Það er örugglega búið að vera mikið fjör hjá þeim feðgum að hittast ! :P:P

Í næstu viku hætta tveir litlir gullmolar hjá Binnu. :( Þær Tinna og Aldís eru að fara að byrja í leikskóla í júní. En svona er lífið. Alltaf kemur að því að Binna þarf að kveðja gullin sín litlu, en sem betur fer þá hittir hún börnin sín "oftast", af og til, á förnum vegi, og sum kíkja í heimsókn.  ;) Það verður skrítið að hafa ekki Tinnu og Aldísi í júní, og börnin verða bara 3 þar til að kemur að sumarfríi. Þá hætta öll börnin mín, og ný koma aftur í haust.

Í morgun er búið að vera mikið fjör hjá okkur. :P Smá árekstrar og svoleiðis, en ekkert sem ekki var hægt að laga :P  Eftir lúrinn og matinn höldum við svo áfram að vera í stuði, leikum og tröllum :haha::haha:

Óskum ykkur góðrar helgar kæru lesendur.

Kveðja frá litlu vistmönnunum í....

.....Binnu-bæ ! :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti